Remba

Hiking Trail

Hard
2.52 km
197 m
Gönguleið í Hallormsstaðarskógi

Leiðin upp Rembu er mjög skemmtileg gönguleið. Á henni er hægt að skoða Lambafoss, 21 m háan, og gilið sem Staðaráin rennur eftir. Ef gengið er alla leið upp kemur maður að gamalli stíflu fyrir 27 kW virkjun sem sá Hallormsstað fyrir rafmagni á árunum 1936-1955. Neðan við stífluna má enn sjá leifar timbursstokksins sem leiddi vatnið niður í virkjunarhúsið.
Vegalengd: 2,8 km
Created By
Fontar ehf

Route and Elevation